Photoshop
Mér finnst asnalegt þegar það er búið að fótósjoppa fólk svo rosalega að það lítur út fyrir að vera úr vaxi. Mér finnst lifandi fólk fallegra en vaxfólk! Meira að segja rosa-fallega fólkið er fótósjoppað í tætlur, sjáiði bara Scarlett Johansson.
Sigurbjörg bloggaði klukkan 20:53 | |
Hann á afmæli, hann Ísak
Í dag á fallegi, yndislegi litli bróðir minn afmæli. Hann er að verða gamall maður, er búinn að lifa heil 25 ár. Samkvæmt grein í morgunblaðinu nú nýlega á hann þá eftir tvö ár þar til andleg hrörnun hefst. Í tilefni dagsins tók ég saman nokkrar myndir af pilti. 





Til hamingju með daginn Ísak minn.
Sigurbjörg bloggaði klukkan 21:16 | |
Blikk, blikk ;) ... eða hvað?
Í kvöld komst ég að því að ég get ekki lokað bara hægra auganu án þess að lyfta líka vinstri augabrúninni. Það er því greinilega eins gott að ég reyni ekki að blikka neinn með hægra auganu. Það kæmi sennilega meira út eins og ég væri með krampa í andlitsvöðvunum.
Sigurbjörg bloggaði klukkan 23:59 | |
Getur einhver...
...sagt mér hvað í andskotanum bindiskylda er?
Sigurbjörg bloggaði klukkan 23:04 | |
Sumt bara skil ég ekki
Í gær las ég frétt sem skelfdi mig. 4 ára gömul stúlka kemur til skógarhöggsmanna og segist halda að mamma sín sé dáin. Mamman, Kenzie Marie, finnst látin í rúminu. Hún er komin átta mánuði á leið. 11 ára sonur sambýlismanns konunnar, Jordan Brown, er sóttur í skólann og hann segist hafa séð grunsamlegan svartan vörubíl á hlaðinu þegar hann fór í skólann um morguninn en þegar hann er spurður nánar út í málið verður hann missaga. Lögreglan talar þá við 7 ára dóttur Kenzie sem segist séð Jordan með byssu um morguninn og heyrt háan hvell. Byssan fannst í svefnherbergi hans og skotsárið á höfði Kenzie virðist passa við hana. Ekkert hefur verið gefið út um hvort að drengurinn hefur játað eða hvort fleiri sönnunargögn eru til staðar. Hann hefur hins vegar verið ákærður sem fullorðin einstaklingur fyrir morð og fyrir morð á ófæddu barni. Hér kemur svo rúsínan í pylsuendanum: BYSSAN UMRÆDDA ER SÉRSTAKLEGA ÆTLUÐ BÖRNUM OG EKKI NAUÐSYNLEGT AÐ SKRÁ HANA.Byssur fyrir börn? Greinar um málið má m.a. lesa á mbl.is og Daily Mail.
Sigurbjörg bloggaði klukkan 22:41 | |
Sitt lítið af hverju
Jæja, þá er ég byrjuð á kúrs í geðlæknisfræði. Þessi vika er fyrirlestrarvika og því eru fyrirlestrar frá átta til hálf fjögur. Þetta hefur bara verið ótrúlega skemmtilegur tími, allavega mun skemmtilegri en mér datt í hug. Er bara ekki frá því að ég hafi svolítinn áhuga á geðlæknisfræði. Vona bara að þessi áhugi og ánægja endist út verknámið. Í síðustu viku og um helgina var ég hins vegar á Akureyri í góðu yfirlæti hjá Ísaki mínum og Hildigunni. Hildigunnur fríkaði út í eldhúsinu og ég fékk lasanga, hrísgrjónagraut, franska súkkulaðiköku og vöfflur. Allt þetta þrátt fyrir að pizza hafi verið pöntuð eitt kvöldið og við skellt okkur á Greifann annað kvöld. Því vil ég segja: Takk fyrir mig elsku Ísak og Hildigunnur, þið eruð frábær! Eftir nokkra tæknilega örðugleika og vandræði vegna tregðu minnar í tölvumálum eru nú komnar inn myndir frá 90 ára afmæli afa gamla. Kíkið á þær Höfðingjar, þó ekki væri nema til að rifja upp hvað við erum öll falleg! P.s. Til að fyrirbyggja misskilning vil ég taka fram að Ísak og Hildigunnur eru líka frábær þó þau gefi mér ekki rosa mikið af góðum mat.
Sigurbjörg bloggaði klukkan 19:18 | |
|