Sjáaldur auga míns Maestro Stjórnkerfi Vefpóstur
Valmynd Bloggið Bloggið Skólinn Myndir Um mig

11. september 2009

Hvernig skal ofsækja fólk rafrænt - leiðbeiningar

Þar sem að fyrsta próf vetrarins er á morgun hef ég fundið mér ýmislegt algjörlega ónauðsynlegt til að gera síðustu daga. Í gærkvöldi datt mér í hug að athuga hvort að einhver færi enn inn á þessa síðu. Fannst það nú reyndar afskaplega ólíklegt þar sem að ekkert hefur verið skrifað hér síðan í apríl síðastliðnum. Það kom hins vegar í ljós að einhverjir kíkja nú enn hingað og það sem meira er síðan hefur verið skoðuð á fjórum mismunandi stöðum í US of A þennan mánuðinn.

Ætli ég eigi kannski aðdáanda þarna úti? Ef svo er er ég hér með fínar leiðbeiningar til að þú, kæri aðdándi, getir fylgst betur með mér.

Sigurbjörg bloggaði klukkan 11:52  | Engar athugasemdir |

01. apríl 2009

Photoshop

Mér finnst asnalegt þegar það er búið að fótósjoppa fólk svo rosalega að það lítur út fyrir að vera úr vaxi.

Mér finnst lifandi fólk fallegra en vaxfólk!

Meira að segja rosa-fallega fólkið er fótósjoppað í tætlur, sjáiði bara Scarlett Johansson.

Sigurbjörg bloggaði klukkan 20:53  | 2 athugasemdir |

30. mars 2009

Hann á afmæli, hann Ísak

Í dag á fallegi, yndislegi litli bróðir minn afmæli. Hann er að verða gamall maður, er búinn að lifa heil 25 ár. Samkvæmt grein í morgunblaðinu nú nýlega á hann þá eftir tvö ár þar til andleg hrörnun hefst.

Í tilefni dagsins tók ég saman nokkrar myndir af pilti.

Hugsi

Sætur!!!

Sexý?

Fokk jú!

Hress

Up close!

Til hamingju með daginn Ísak minn.

Sigurbjörg bloggaði klukkan 21:16  | 5 athugasemdir |

25. mars 2009

Blikk, blikk ;) ... eða hvað?

Í kvöld komst ég að því að ég get ekki lokað bara hægra auganu án þess að lyfta líka vinstri augabrúninni. Það er því greinilega eins gott að ég reyni ekki að blikka neinn með hægra auganu. Það kæmi sennilega meira út eins og ég væri með krampa í andlitsvöðvunum.

Sigurbjörg bloggaði klukkan 23:59  | Engar athugasemdir |

24. febrúar 2009

Getur einhver...

...sagt mér hvað í andskotanum bindiskylda er?

Sigurbjörg bloggaði klukkan 23:04  | 3 athugasemdir |

23. febrúar 2009

Sumt bara skil ég ekki

Í gær las ég frétt sem skelfdi mig.

4 ára gömul stúlka kemur til skógarhöggsmanna og segist halda að mamma sín sé dáin. Mamman, Kenzie Marie, finnst látin í rúminu. Hún er komin átta mánuði á leið. 11 ára sonur sambýlismanns konunnar, Jordan Brown, er sóttur í skólann og hann segist hafa séð grunsamlegan svartan vörubíl á hlaðinu þegar hann fór í skólann um morguninn en þegar hann er spurður nánar út í málið verður hann missaga. Lögreglan talar þá við 7 ára dóttur Kenzie sem segist séð Jordan með byssu um morguninn og heyrt háan hvell. Byssan fannst í svefnherbergi hans og skotsárið á höfði Kenzie virðist passa við hana. Ekkert hefur verið gefið út um hvort að drengurinn hefur játað eða hvort fleiri sönnunargögn eru til staðar. Hann hefur hins vegar verið ákærður sem fullorðin einstaklingur fyrir morð og fyrir morð á ófæddu barni.

Hér kemur svo rúsínan í pylsuendanum: BYSSAN UMRÆDDA ER SÉRSTAKLEGA ÆTLUÐ BÖRNUM OG EKKI NAUÐSYNLEGT AÐ SKRÁ HANA.

Byssur fyrir börn?

Greinar um málið má m.a. lesa á mbl.is og Daily Mail.

Sigurbjörg bloggaði klukkan 22:41  | Engar athugasemdir |

© Ísak Sigurjón, 2007