Myndasöfn
|
St. Patrick's Day
Á degi heilags Patreks var tilboð á Guinness og Kilkenny. Hildigunnur, Ísak og Bragi skelltu sér og svo var hringt í mig þegar allir voru orðnir nokkuð slompaðir. Ég dreif mig á sjálfsögðu með í fjörið. Með bjórnum var boðið upp á dýrindis ketsúpu, hatta og pappagleraugu. Stórkostlegt.
|
|
Stuð í febrúar og mars 2009
Í febrúar fór ég til Akureyrar sem var auðvitað frábært eins og alltaf. Við Ísak og Hildigunnur skelltum okkur á Karólínu til að skoða menningu í höfuðborg norðursins.
Í mars komu Skaki og Gildihunnur svo í heimsókn til mín. Pétur Fannberg og Anna Lilja kíktu við og myndarvélaæði rann greinilega á okkur. Enda erum við öll svo falleg!
|
|
Janúar-mars 2009
Ýmsar myndir frá fyrstu þremur mánuðum ársins 2009. M.a. frá þorrablóti hjá Dísu og Sigurjóni og heimsókn Danna og Hrafnhildar.
|
|
Árshátið FL 2009
Þann 14. mars var árshátið Félags læknanema. Þar var mikið fjör og margt fallegt fólk. Eins og venjulega urðu myndirnar of fáar en hér koma þær nú samt.
Þið sem voruð á svæðinu: Takk fyrir skemmtunina!
|
|
Jólin '08 og áramótin '08-'09
Ég fór í sveitina í jólafríinu mínu og var hjá gömlu hjónunum. Milli jóla og nýárs kom svo Hlífa með stelpurnar og hundinn Steina.
Áramótunum var svo fagnað á Akureyri heima hjá Árna og Nínu með Ísaki, Hildigunni, Klöru og Sigga.
|
|
90 ára afmæli afa Kibba
Þann 10. janúar 2009 varð afi minn, Kristmundur Bjarnason, 90 ára. Við það tækifæri safnaðist stórfjölskyldan saman heima hjá mömmu og pabba og gerði sér glaðan dag, át kökur og drakk kaffi í óhófi. Er það mál manna að dagurinn hafi heppnast vel.
|
|
Hittingur hjá Þorgeiri
Eftir 90 ára afmæli afa gamla hittust sex af systkinabörnunum hjá Þorgeiri. Þar var auðvitað mikil gleði og mikill hávaði eins og alltaf þegar við hittumst.
|
|
Thailand, 1. hluti
Ferð til Thailands í apríl og maí 2007 með Friðrik. Í þessum hluta eru myndir frá Bangkok (ótrúlegar andstæður), nokkrar apamyndir, fyrstu myndirnar frá Chang Mai og myndir af fílsreiðinni.
|
|
Thailand, 2. hluti
Í þessum hluta eru myndir frá stórkostlegri þriggja daga gönguferð um fjöll nálægt Chang Mai. Það var svo heitt fyrsta daginn að ég hélt að ég myndi deyja en allt var það þess virði þegar við komum í fyrsta þorpið. Leiðsögumaðurinn veiddi snák og hann var smakkaður um kvöldið. Í þorpinu sem við gistum annað kvöldið voru yndisleg börn sem dönsuðu og sungu fyrir okkur. Í þessum hluta eru líka myndir af hrikalega sorglegum apagarði þar sem að aparnir voru allir hlekkjaðir við tré.
|
|
Thailand, 3. hluti
Hér eru myndir af frábærri fílasýningu, pínulitlum vernduðum reit þar sem að apar búa í tugatali, kajak/snorkl-ferðinni út á litla óbyggða eyju og Koh Tao þar sem að við enduðum ferðinna og lærðum að kafa.
|
|
Ættarmót 2007 - fyrri hluti
Fallegasta fólk í heimi samankomið á einum stað. (Reyndar vantaði því miður nokkra sem voru úti á sjó eða í útlöndum.) Hvað meira er hægt að segja?
|
|
Börn og dýr
Samsafn af myndum af börnum og dýrum í fjölskyldunni.
|
|