Sjáaldur auga míns Maestro Stjórnkerfi Vefpóstur
Valmynd Bloggið Bloggið Skólinn Myndir Um mig

Um mig



E-mail: sigurbjorg[hjá]sigurbjorg.com
MSN: sigurbjorg_b[hjá]hotmail.com
Sími: 865 0207

Ég heiti Sigurbjörg Bragadóttir og var alin upp í Skagafirði. Þar eyddi ég 15 fyrstu árum ævi minnar í sveitasælunni og gekk í skóla í stórborginni Varmahlíð. Á 16. ári skokkaði ég með helstu nauðsynjar austur yfir Öxnadalsheiðina og settist að á heimavist MA. Þar fóru fjórir vetur í að reyna að verða að fullorðnum einstakling, en sumrunum var eytt í heimabyggð við hin ýmsu störf.

Eftir þessi fjögur ár þóttist ég fær í flestan sjó og fullþroskuð. Síðan hefur komið á daginn að það var ekki alveg rétt hjá mér. Haustið 2001 fluttist ég í höfuðborgina. Nánar tiltekið í litla kjallaraíbúð í Norðurmýri þar sem ég bý enn með gömlu kisunni minni Myrru. Fyrsta vetrinum var eytt í vinnu á tannlæknastofu en því næst skráði ég mig í læknisfræði í Háskóla Íslands. Eftir brösuga byrjun og slæman millikafla hef ég nú klórað mig upp á 4. ár og aldrei líkað betur.






© Ísak Sigurjón, 2007